Hvað kostar þessi vitleysa

KPMG eru búnir að vera með her sérfræðinga að skoða eigin endurskoðun hjá Glitni og nú verður að fá aðra (vonandi hlutlausa) aðila til að skoða allt aftur, hvað er þetta búið að kostar okkur mörg hundruð milljónir og hvað mun svo kosta að endurskoða vinnu KPMG. Er ekki hægt að fá þær upplýsingar upp á yfirborðið og er ekki réttast að KPMG greiði fyrir þá vinnu sem fer í að endurskoða þeirra vinnu.

Hvað kostar þessi vitleysa

KPMG eru búnir að vera með her sérfræðinga að skoða eigin endurskoðun hjá Glitni og nú verður að fá aðra (vonandi hlutlausa) aðila til að skoða allt aftur, hvað er þetta búið að kostar okkur mörg hundruð milljónir og hvað mun svo kosta að endurskoða vinnu KPMG. Er ekki hægt að fá þær upplýsingar upp á yfirborðið og er ekki réttast að KPMG greiði fyrir þá vinnu sem fer í að endurskoða þeirra vinnu.
mbl.is KPMG vill rannsókn á störfum fyrir Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að losa út krónubréfin við fleytingu krónunar

Er ekki rétt að nota tækifærið þegar krónan fer á flot aftur og fellur niður sem allar líkur eru á að hún gerir og kaupa öll krónubréfin sem hægt er að komast yfir. það er talað um að það séu um 450 milljarðar í krónubréfum úti í heimi sem eigendur þeirra vilji losa sig við. Á genginu í dag ca 176 kr/evra eru þetta 2.556.800.000 evrur en ef krónan fellur um t.d. 50% eða í 264 kr/evra og bréfin eru keypt á því gengi þá þarf að greiða 1.704.550.000 evrur og sparast þá 852.250.000 evrur af gjaldeyrisforðanum. Þegar búið er að losa þessi bréf ætti krónan að vera snögg að styrkjast og við getum farið að byggja upp aftur.

En jafnframt verður að frysta vísitölu á lánum í t.d. 3-4 mánuði meðan versta verðbólguskotið ríður yfir til þess að heimilin í landinu fari ekki á hausinn. Það er ótrúlegt að hlusta á framámenn segja að það væri algert glapræði að frysta vísitölu tímabundið þar sem íbúðarlánasjóður og lífeyrissjóðirnir muni tapa svo miklum peningum, þá verður maður að spyrja? hver á íbúðarlánasjóð og lífeyrissjóðina, er það ekki sama fólkið og mun missa allar sínar eignir á næstu mánuðum ef vísitalan verður ekki fryst. Hvort er mikilvægara fyrir þorra fólks að geta lifað sómasamlegu lífi næstu árin í sínum eignum og fá örlítið minni lífeyri þegar þar að kemur (því ekki má gleyma að við erum bara að tala um ávöxtun á innistæðum) heldur en að missa allar eignir sínar og stolt, vera borin út eftir nokkra mánuði og vera næstu 10 ár að berjast í bökkum eignalaus og vonlaus.  


mbl.is Hvað þýðir ef krónan er sett á flot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Hagur

Höfundur

Viðar Marinósson
Viðar Marinósson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband